fhf

Hver er að Blogga?JúliaBjörk

Músík: A little less sixteen candles, a little more "touch me"

 


fd

c_media_photo_my_album_julia_jullajullanektarbulla_image147.jpg

Jahm

Að vera í skólanum til 6, er bara hreinsti skítur, og að vera taka upp mynd, og sitja á rassinum mest allan tíman er bara minn heitasti draumur, já ég er smá pirruð, en allavega, nóg komið af þvíJoyful

Svo í gær þá gisti Hildigunnur mín hjá mérGrintókum shopgirl á leigu, og vá hvað þetta var leiðinleg mynd, skildi ekki rassgat hvað var að gerast í henni, og hver tekur nektarmyndir af sér og teiknar eftir þeimShocking alla vega, ég skil það ekki

Svo er ég búin að setja videoin síðan jónsi var að stjórna samsöngi hénna, það var svo gaman, hló svo mikið, svo er ég að fara að setja videoin úr ungir gamlir tónleikunum;)

En ég nenni ekki að hafa þetta lengra;)

JúlíaBjörk


Sumarfrí á Morgun

c_media_monitor_default_profile_img-20060608-1258510046.jpg

Á morgun þá fer ég i sumarfrí =D er búin að bíða bara lengi eftir þvi, og svo er ég komin með vinnu fyrir sumarið, aðpassa og fara í Vinnuskólann

Í dag þá var skóli, sem var alveg tilgangslaus, mættum i skólan, töluðum aðeins saman, fengum einkunnir úr tvem prófum, fórum siðan inná sal og horfðum á stuttmynda keppni, btw Ástþór og Malló Unnu ;**, svo var skólinn búinn

Eftir skólan þá fórum ég og Hildigunnur heim og fengum okkur að borða, og tókum webcammyndir, en svo fórum við uppískóla, útaf vinnuskólafurniz, fórum svo heim og horfðum á DisneyChannel, ójá við erum töff

En ég ætla að fara að sofa, þarf að vakna kl.6 á morgun og fara að passa


Reykjavík

d_skjolin_okkar_julla_my_pictures_kodak_pictures_2006-05-14_100_9676.jpg

Ég er ekkert að standa mig á þessari síður:S En í gær þá skelltum ég og Auður okkur til Reykjarvíkur, það var dáldið vesen að komast þangað en við komust þangað á endanum,

Fórum í kringluna og hittum bald og sindra þar, keyptum bol á bald, og Auður var að reyna að vera enhvað fatasérfræðingur og var að spyrja hann allveg ónauðsynlegra spurninmgar, eins líður þér vel í þessum lit, æ, hún er rugludallur, og lika klaufi, hún fór á klósettið og var alveg óvenjulega lengi á klósttinun, svo ég ákvað að fara til hennar, og hún let mig koma inn á klósett og eina sem ég sá var klósett allt útí blóði, og ég hélt að hún væri að byrja á túr og labbaði bara fram, og ætlaði bara að láta hana bjargar sér sjálf, en svo ætlaði ég að vera gg góð og vera hjá henni, en nei, þá var hún búin að skalla veggin og fékk blóðnasir, og ég hljóp þá út í hláturskasti

Svo fórum við heim til frænku og frænda balds og fórum að passa einhverjar krakka, eða ég var að leika við Þau og hin 3 voru í tölvunni, svo hringdi Ragga systir Auður og spurði hvort´hún gæti passað fyrir sig, og Auðvitað gerði hún það og gisti hjá henni, og ég er svo mikill aumingji og þorði ekki að taka strætó ein heim´og fékk að gista líka=D

Þegar Ragga kom og náði í okkur, þá þurfti ég að troða mér i gegnum allt draslið í bílnum hennar, þvi hurðin var biluð, svo voru þau öll að spjalla úti svo öskra ég : ÉG KOMST!!, já, ég er sérstök, svo þegar við fórum heim til hennar þá skríddi ég í gegnum allt draslið aftur.

Þegar Ragga og kærastinn hennar fóru þá fóru hún Auður beina leiðina í tölvuna, meðan ég horfði bara á Vanilla sky, svo þegar ég fór að sofa, þá þurfti ég að nota jakkan minn sem teppi, þvi ragga átti bara eitt teppi

Þegar ég vaknaði svo Þá var Auður i tölvunni, og Ragga að koma heim með morgunmat, svo fór ragga og kærastinn hennar i sund, og við vorum þá að passa Auðunn, og svo komu Baldur og Sindri til okkar, og við vorum að ekki gera neitt, svo komu þau aftur heim og þá fórumm við út, fórum i kringluna í 5 mínútur, og þá kom ragga og náði i okkur og skutlaði okkuruppí mosó


I don't care if you don't

image023.jpg

But there's nothing wrong with me
This is how I'm supposed to be
In a land of make believe
That don't believe in me

Er hreinlega búin að vera að nauðga þessu lagi eftir að ég heyrið það hjá Ástþór, sem sagt Jesus of surburbia, og það er bara í níu mín, ekkert það langt. Og það passar einhvernig bara við mig

 <>Svo er skólina alvega að vera búin, bara 30 dagar eftirHlæjandi samt eru prófin eftir...og ef ég fæ hærra en 8 í öllum prófunum þá fæ ég TRAMPOLÍN:D, ætla að læra á fullu, ætla að fá þetta trampolín.

Svo kom alex heim á mánudaginn og hann gaf mér tiggjó og nýja takka á gemsan minnHlæjandi núna get ég notað hann aftur án þess að vera alltaf með prjón

ætla ekkert að hafa Þetta lengra

Júlía is out 


Fleiri myndir

Rvk?? Já takk

d_skjolin_okkar_eva_kristin_my_pictures_kodak_pictures_2006-04-23_100_8949.jpg

Það er búið að vera geðveikt í dag

Vaknaði um 10 leitið þegar Thelma sæta hringdi í mig, svo kom hún til mín, og við fórum svo bara að horfa á teiknimyndirGlottandiójá, við erum töff, En hún tók svo strætó heim um morgunin.

Svo sagði mamma að hún væri að fara til Rvk á ég ákvað bara að skella mér með, og Hitta Hildigunni og Eygló í smáranum.

Þegar við komum til Reykjarvíkur þá fórum við fyrst í kringluna og ég keypti mér buxur í Vero Moda og jakka í aktíf, elska þennan jakkaHlæjandi

Svo skutlaði mamma og pabbi mér í smáran og þá hitti ég furðuverkin sem guð skapaði.

Hittir Hildigunni og Eygló í Ice in a bucket og þær voru að verslaGlottandiHildigunnur keypti sér þumalputta hring með peace merkinu á og Eygló Hlekki. En já fórum svo í Hygea og vorum einhvað að flippa með Sólgleraugu, og Hildigunnur missti sig aðeins, en já svo fórum við bara að skoða helling af búðum, ogtók mjög margar myndir af Hildigunni, svo það eru mjög margar myndir af henni. Sáum svo geðveikt flottan Hummer, sem mér langar í, en svo fórum við í einhverja búð sem allt er ódýrt er í, og ég keypti mér geðveikt góðan brjóstsykur. Svo skoðuðum við ennþáfleiri búðir, keyptum okkursíðan ís, fórum svo einhvað á garðasýning og við vorum að skoða heitapotta og láta okkur dreyma um þá, fórum svo í Body shop, og vorum þar mjög lengi, og fórum svo að skoða skó, og ég fann skó sem ég ætla að kaupa mérHlæjandi.

Hef ekkert meira að segja.


Fleiri myndir

Lonely

c_media_photo_my_album_image082.jpg

Lonely im so lonely,
I have nobody,
To call my owwnnn
Im so lonely, im mr. Lonely
I have nobody,
To call my owwnnn
Im so lonely,
 
 
Þetta lag passar akkúrat við mig núna, er ein heima að taka webcam myndir af mér og er með kveikaraÓákveðinnjá, svo er Auður týnd, veit ekki hvar hún er, held að hún sé ennþá í Hólminum, en farðu að drulla þér heim.

Annars búin að vera fínn dagur, Særún kom í dag og kom með snakk, nammi og In her shoes, já, og ég var bara að horfa á hana með mömmum, huldu og særúnu, og mér fannst myndin bara fín

Ég held að ég verði brennuvargur í framtíðinni, er að fikta með kveikara, Eva hefur greinilega ekki góð áhrif á mig.

Tók þetta frá evu

Put your iTunes/Winamp/WMP on shuffle. Say the following questions aloud, and press play. Use the song title as the answer to the question. NO CHEATING.

  1. How does the world see you? "Whenever wherevere" Shakira
  2. Will I have a happy life? "They can&#39;t take that away from me"- Robbie Williams
  3. What do my friends think of me? "Daddy"- Korn
  4. Do people secretly lust after me? "Only One" - Lifehouse
  5. How can I make myself happy? "I will" - RENT
  6. What should I do with my life? "Dry you Eyes" - The Streets
  7. Will I ever have children? "Ísbjarnablús" - Bubbi
  8. What is some good advice for me? "1000 kossa Nótt" - Bubbi
  9. How will I be remembered? "Yeah" - Usher
  10. What&#39;s my signature dancing song? "Somewhere Over The Rainbow/What a Wonderful World" -Israel Kamakawiwo&#39;ole
  11. What&#39;s my current theme song? "What is life for" Creed
  12. What do others think is my current theme song? "Í spegli Helgu" - Egó

  13. What shall they play at my funeral? "Shameful" - Atreyu
  14. What type of wo/men do I like? "Vertu ekki að plata mig" HLH-flokkurinn
  15. How&#39;s my love life? "Good Fucking Bye" Alkaline Trid
  16. Haha, snilld en ætla ekki að hafa þetta lengra

Haha, snilld en ætla ekki að hafa þetta lengra


Nýtt blogg;)

d_skjolin_okkar_eva_kristin_my_pictures_myndir_icons_2700.gif

Já þetta er bara nýtt blogg hjá mér, ætla að gá hvort ég geti einhvað á þetta, skildi alls ekkert á bloggar.isÓákveðinnallt of flókið fyrir mig. En í gær hefði kisan mín orðið 6 ára gömulGrátasakna þín bara mikið, kanski ertu einhverstaðar á lífi, og í gær hélt ég uppá afmæli hennar með auði og helgu, keyptum búðing. Komum svo heim, gerðum hann og átum og átum

Og það er bara komið sumar:D Fór í sund í dag með Eygló, vorum ekkert það lengi, en svo fórum við að kaupa ís. Hittum þá Hildigunni og Sonju, og við allar fórum svo niður á langasand að borða ísinn og það endaði að ég og Eygló fórum að vaða í sjónum, en Eygló mín entist ekki lengi, fannst það dáldi kalt. Svo fórum við heim til Eyglóar að horfa á friends


Fleiri myndir

Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband